Er tæknin að rugla þig?
Ekkert flókið tæknimál, engar flækjur. Bara þekkingin sem þú þarft til að láta hlutina virka.
Hafðu sambandEr þetta fyrir þig?
Ef þú rekur lítið fyrirtæki, ert einyrki, tæknilega óöruggur eða vilt bara fá ráð, þá er þetta fyrir þig.
Við vitum að þú vilt eyða tímanum í að sinna þínum rekstri, ekki reyna að skilja af hverju tölvupósturinn virkar ekki eða hvað "DNS" þýðir. Hugsaðu um okkur eins og fróða vininn sem þú getur hringt í þegar eitthvað vantar.
Hvað getum við gert fyrir þig?
Við tökum að okkur tækniverkefni sem halda þér vakandi á nóttunni eða hægja á vinnudeginum þínum.
Heildarskoðun
Við skoðum það sem þú ert með - tölvupóst, lén, öryggi og hugbúnað - og gefum þér skýra mynd af hvar þú stendur. Ef við teljum eitthvað vanta eða gæti sett þig í hættu látum við þig vita.
Tölvupóstur og öryggi
Lendir pósturinn þinn í ruslpósti? Getur einhver þóst vera þú? Við tryggjum að tölvupósturinn þinn komist til skila og sé öruggur. Þú þarft ekki að vita hvað SPF, DKIM, DMARC eða DNS þýðir. Við sjáum um það.
Microsoft 365 eða Google Workspace
Uppsetning frá grunni, heilsufarsskoðun á núverandi kerfi, eða flutningur - hvort sem þú vilt skipta á milli kerfa eða flytja þig frá enn öðrum þjónustuaðila.
Ertu að greiða of mikið?
Við förum yfir hugbúnaðarkaup og áskriftir - þjónustur sem renna á autopilot, vefsíðuáskriftir, hugbúnaður sem enginn notar - og leggjum til hvar þú gætir sparað.
Einföld vefsíða án óþarfa kostnaðar
Þarftu einfalda vefsíðu en vilt ekki greiða þúsundir á mánuði í áskrift? Við getum byggt einfalda og fallega vefsíðu með litlum eða engum hýsingarkostnaði. Viltu geta breytt efni sjálfur? Tengjum við einfaldan ritil. Enginn óþarfi.
Einhver sem þekkir reksturinn þinn
Viltu geta leitað til einhvers sem þekkir þín kerfi og getur hjálpað þér þegar spurningar vakna? Við getum tekið að okkur reglulegt eftirlit eða verið til taks þegar þörf krefur - án þess að þú þurfir að útskýra allt frá grunni í hvert skipti.
Svona virkar þetta
Engin langtímaskuldbinding nauðsynleg.
Þú hefur samband
Sendu okkur stutta línu um hvað er að angra þig eða hvað þú vilt fá aðstoð með.
Við skoðum málið
Við förum yfir stöðuna, skoðum hvað þú ert með og finnum út úr því hvað þarf að gera.
Skýrar lausnir
Þú færð skýrar ráðleggingar og heiðarlegt mat sem þú skilur.
Spurningar sem við heyrum oft
Hvað kostar þetta?
Það kostar ekkert að hafa samband. Þú færð svo alltaf fast verð áður en vinna hefst, byggt á umfangi verkefnisins. Engir óvæntir reikningar.
Þarf ég samning?
Nei. Engin binding og engin skuldbinding. Þú sendir línu þegar þú þarft hjálp og við sjáum hvort við getum aðstoðað og semjum þá um verkið fyrirfram. Ef þú vilt fasta umsjón eða aðgengi getum við reynt að setja upp eitthvað sem virkar fyrir báða aðila.
Ég er ekki viss um hvað ég þarf — er það í lagi?
Algjörlega. Þú þarft ekki að vita hvað vandamálið er. Segðu okkur bara hvað er að valda þér áhyggjum og við skoðum málið.
Er eitthvað sem þarf að græja?
Ekki hika við að senda okkur línu. Við svörum um hæl og hjálpum þér af stað.
Heyrðu í okkur