Er tæknin að rugla þig?
Hafðu sambandRekur þú lítið fyrirtæki, óviss með tæknina eða vilt bara fá ráð? Þá getum við hjálpað.
Við vitum að þú vilt eyða tímanum í að sinna þínum rekstri, ekki reyna að skilja af hverju tölvupósturinn virkar ekki eða hvað "DNS" þýðir.
Hvað getum við gert fyrir þig?
Tækniverkefnin sem hægja á þér — við tökum þau af þér.
Heildarskoðun
Við skoðum tölvupóst, lén, öryggi og hugbúnað og gefum þér skýra mynd af hvar þú stendur.
Tölvupóstur og öryggi
Við tryggjum að pósturinn þinn komist til skila og sé öruggur. Þú þarft ekki að vita hvað SPF eða DKIM þýðir.
Microsoft 365 eða Google Workspace
Uppsetning, heilsufarsskoðun eða flutningur á milli kerfa. Við sjáum um allt.
Ertu að greiða of mikið?
Við förum yfir áskriftir og hugbúnað sem enginn notar og leggjum til hvar þú gætir sparað.
Einföld vefsíða án óþarfa kostnaðar
Einföld og falleg vefsíða með litlum eða engum hýsingarkostnaði. Viltu breyta efni sjálfur? Tengjum ritil.
Einhver sem þekkir reksturinn þinn
Reglulegt eftirlit eða aðstoð þegar þörf krefur — án þess að þú þurfir að útskýra allt frá grunni í hvert skipti.
Svona virkar þetta
Engin langtímaskuldbinding nauðsynleg.
Þú hefur samband
Sendu okkur línu um hvað er að angra þig.
Við skoðum málið
Við skoðum stöðuna og finnum út hvað þarf að gera.
Skýrar lausnir
Þú færð skýrar ráðleggingar og heiðarlegt mat sem þú skilur.
Spurningar sem við heyrum oft
Hvað kostar þetta?
Það kostar ekkert að hafa samband. Þú færð svo alltaf fast verð áður en vinna hefst, byggt á umfangi verkefnisins. Engir óvæntir reikningar.
Þarf ég samning?
Nei. Engin binding. Þú sendir línu þegar þú þarft hjálp og við semjum um verkið fyrirfram.
Ég er ekki viss um hvað ég þarf — er það í lagi?
Algjörlega. Þú þarft ekki að vita hvað vandamálið er. Segðu okkur bara hvað er að valda þér áhyggjum og við skoðum málið.
Er eitthvað sem þarf að græja?
Ekki hika við að senda okkur línu. Við svörum um hæl og hjálpum þér af stað.
Heyrðu í okkur